Staða
Glæsilegt og fjölskylduvænt hús á Spáni til leigu. Húsið er staðsett á frábærum stað á Orihuela Costa svæðinu sem er í 45-50 mínútna aksturs fjarlægð frá flugvellinum á Alicante.
Í húsinu eru þrjú svefnherbergi sem eru öll með nýju hjónarúmi (180x200 cm) en auk þess er nýr hornsófi í sjónvarpsholi þar sem tveir geta sofið svo alls geta átta fullorðnir gist í húsinu. Þá er eitt ferðarúm í húsinu fyrir ungt barn. Herbergjaskipan er með þeim hætti að eitt svefnherbergi er á jarðhæð ásamt svefnsófa í sjónvarpsholi og minna baðherberginu. Tvö svefnherbergi eru á annarri hæð hússins ásamt stærra baðherberginu.
Í húsinu er þægileg borðstofa með borðstofuborði og átta borðstofustólum. Þar við hliðina er sjónvarpshol með nýjum hornsófa (sem einnig er svefnsófi) og 75“ flatskjá þar sem hægt er að nálgast allar helstu streymisveiturnar. Eldhúsið er fullbúið en hægt er að ganga út í garðinn út frá eldhúsi. Þar er einnig uppþvottavél, örbylgjuofn og baunakaffivél.
Í húsinu eru tvö baðherbergi. Í því minna (sem er á jarðhæð) er sturta en sturta og baðkar er í því stærra (sem er á annarri hæðinni).
Þráðlaust net og loftkæling er í öllu húsinu. Kolagrill er í garðinum.
Útiaðstaðan er mjög góð við húsið. Þar er steypt borð og steyptir bekkir með yfirbyggingu þar sem hægt er að njóta matar og drykkjar í forsælu. Einkasundlaugin er þar beint á móti ásamt útisturtu. Almenningssundlaug er innan við 50 metra frá húsinu, þeir sem vilja nýta sér þá aðstöðu, en þar er einnig sólbaðsaðstaða. Þá er einnig góð sólbaðsaðstaða bæði í garðinum við einkasundlaugina og einnig á stórum svölum sem útgengt er fá öðru svefnherberginu á 2. hæð hússins. Þá eru einnig stórar þaksvalir, sem eru að hluta til yfirbyggðar, þar sem bæði er hægt að sóla sig eða sitja í forsælu en svalirnar eru með góðum garðhúsgögnum (hornsófi og tveir sófar með þykkum sessum). Á þaksvölunum er bæði hægt að slaka á með góða bók í forsælu og/eða njóta matar & drykkjar eða bara fylgjast með sólsetrinu.
Mjög stutt er í þjónustu á borð við matvöruverslun en Aldi er í um 75 metra fjarlægð frá húsinu. Þá er einnig stutt í apótek, bari og veitingastaði eða um 700 metrar (er í Via Park 3), þá er einnig bar og verslun við hliðina á húsinu (sama húsnæði og JYSK), þar sem hægt er að kaupa alls kyns dót, t.d. uppblásið dót í sundlaugina, handklæði, sólarvarnir, spil o.fl.
Þá er öll afþreying innan seilingar eins og strandir, t.d. Playa de la Zenia og Playa Punta Prima, báðar í um í 3-4 km. fjarlægð, La Zenia verslunarmiðstöðin er í 3,5 km. fjarlægð, Go Kart braut, skemmtigarðar (bæði tívolí- og vatnsrennibrautagarðar eru nálægt), golfvellir (t.d. Villamartín Golf), vínhéröð og spænsk menning.
Leiguverð:
Verð á viku (án þrifagjalds):
- október – 31. mars ár hvert: 70.000 kr./500 evrur.
- apríl – 30. september ár hvert: 100.000 kr./700 evrur.
Leiga yfir jól og páska skv. samkomulagi.
Þrifagjald: 100 evrur. Skilið eftir við brottför. rafmagn greiðist skv. mæli við brottför.
-
Max:
Room facilities:Háblásari, Ísskápur, Loftkæling, Örbylgjuofn, Seating area, Shared bathroom, Sólarþak, Sólbekkir, Sækja/Keyra á flugvöll, Útisundlaug
Bed size:Hjónarúm, Tvö Einbreið og Tvær Loftdýnur
Room size:64 m2
Íbúð